MÁLARAMEISTARI
Róbert Jóhann Guðmundsson heitir Jóhann í höfuðið á ömmu sinni. Amma hans og afi fluttu til Keflavíkur frá Austfjörðum svolítið fyrir miðja síðustu öld og þar með var grunnurinn lagður að hans sögu í Reykjanesbæ.
Róbert Jóhann er 54 ára, giftur Ólöfu Elínu Rafnsdóttur og eiga þau tvo uppkomna syni, þá Elvar Inga og Garðar Inga. Hann er lærður málarmeistari og hefur rekið Málningarþjónustu JRJ frá árinu 2004 ásamt tveimur öðrum. Í dag starfa hjá þeim 16 manns og er Róbert stoltur af því að hafa byggt upp öflugt teymi.
Róbert hefur verið virkur í starfi Framsóknar í Reykjanesbæ síðan 2018. Á þessu kjörtímabili hefur hann gegnt formennsku í umhverfis- og skipulagsráði og situr í dag sem bæjarfulltrúi. Róbert vil sjá Reykjanesbæ halda áfram að dafna og þróast. Þegar bær vex hratt fylgja því áskoranir sérstaklega þegar kemur að innviðum eins og leikskólum, skólum og annarri þjónustu.
Þetta er flókið verkefni sem tekur tíma, en unnið er að því á hverjum degi. Róbert hefur mikla ánægju af stangveiði þegar tími gefst. Hann á einnig mótorhjól sem hann nýtir vel og fór til dæmis í ógleymanlega ferð um Alpana fyrir ári síðan. Þá fylgist Róbert vel með íþróttum, sérstaklega körfubolta og fótbolta og finnst úrslitakeppnin í körfunni vera skemmtilegasti tími ársins.
Sturluð staðreynd: Róbert hef farið á mótorhjóli yfir Alpana, stýrt fyrirtæki með fjölda starfsmanna og tekið þátt í að móta framtíð bæjarins en fær samt mesta adrenalínið við það að bíða eftir að bitið sé á veiðistönginni eða spennandi lokamínútum í körfuleik.
Róbert skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí næstkomandi