Miðbæjarmálin á dagskrá
Við í Framsókn viljum hefja undirbúning að uppbyggingu öflugs þjónustukjarna og viljum horfa til þess að það verði gert á reit gömlu slökkvistöðvarinnar og þar í kring. Okkur finnst einnig sjálfsagt að íbúar fái að koma að ákvörðun um uppbyggingu sem þessa. Setjum málið á dagskrá og tökum umræðuna og förum í aðgerðir. Framsókn í Reykjanesbæ mun beita sér fyrir því.
- Sýnt hefur verið fram á t.d. í nýja miðbæjarkjarnann á Selfossi að samvinna sveitarfélags og einkaaðila kemur hlutunum á hreyfingu. Í góðri samvinnu viljum við láta hanna nýjan miðbæ í Reykjanesbæ þar sem blanda af verslun, þjónustu og afþreyingu verður í hávegum höfð.