Útivistarparadísin Reykjanesbær
Stóreflum ræktun og uppbyggingu í landi Reykjanesbæjar og leggjum sterkari grunn að fjölbreyttum útivistarmöguleikum. Reykjanesbær býr við mikla sérstöðu þegar kemur að tengingu við náttúruna. Framsókn í Reykjanesbæ leggur áherslu á að Reykjanesbær leiði vagninn í framkvæmdum og aðgerðum.
- Fitjarnar eru paradís í miðjum bænum, opnum svæðið meira og stuðlum að enn skemmtilegri Reykjanesbæ.
- Í samvinnu við hagsmunasamtök og aðila á svæðinu skulum við hefja umfangsmesta skógræktarátak á Íslandi – ræktum upp Reykjanesbæ. Byggjum upp skjólsælla og fallegra bæjarfélag.
- Fleiri heilsustígar, tengjum hverfin betur og lýsum upp gönguleiðir bæjarins.
- Eflum tækifæri til útivistar í Sandvík, bætt aðgengi og kynning á svæðinu fjölgar tækifærum til útivistar.
- Sólbrekkuskógur og Seltjörn er frábært útivistarsvæði rétt við útjaðar bæjarins. Tengjum svæðið við bæinn með göngu og hjólastíg og byggjum það upp.
- Vinnum með Suðurnesjabæ og tengjum bæjarfélögin með hjólreiða- og göngustígum. Byrjum á að tengja kirkjugarðinn og Leiruna við göngustígakerfi bæjarins.
- Gerum Bergið og göngustígana þar aðgengilega öllum.
- Útivist í mínu hverfi! Útivistaráætlun fyrir hvert hverfi. Hlúum að grónum svæðum og búum til skapandi og skemmtileg umgjörð um þau.
- Tengjum saman Hafnir og Ásbrú með göngu og hjólastíg.
- Íbúasamkeppni um framtíð útivistarsvæðisins við Vatnsholt.
- Áframhaldandi kröftug uppbygging Njarðvíkurskóga, við getum öll verið sammála um það.