Fjölbreytt afþreying fyrir fjölskyldur
Framsókn vill stuðla að fleiri afþreyingarmöguleikum fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ. Góð tengsl milli barna og foreldra stuðlar að virkni og vellíðan í samfélaginu. Reykjanesbær er fjölskyldu- og menningarbær, vinnum með styrkleika okkar. Framsókn vill styðja við fjölskyldur í bænum á fjölbreyttan máta. Fjölgum tækifærum fyrir fjölskylduna til að njóta saman.
- Uppbygging innigarðar til leikja og samveru. Staður þar sem fjölskyldan getur notið saman og íbúar geta ræktað tengslin.
- Eflum menningarmiðstöðvarnar okkar líkt og bókasafnið og Duushús.
- Stuðningur við fjölbreytta menningarviðburði, tvöföldum framlög í menningarsjóð.
- Tryggjum að framtíðarstefnur í menningarmálum verði að veruleika. Skapandi greinar samfélagsins og þau félög og einstaklingar sem drífa þær áfram glæða bæinn okkar lífi. Framsókn í Reykjanesbæ vill lifandi menningarbæ fyrir okkur öll.
- Nýtum afþreyingarmöguleika sem nú þegar eru til staðar eins og heilsustíga og útivistarsvæði enn betur með fjölbreyttum leiðum. Leitum til íbúa og komum hugmyndum og vilja þeirra í framkvæmd.