Tryggjum Öflugan stuðning
Samfélagið okkar býr svo vel að hér blómstrar fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf. Á liðnu kjörtímabili var öllum beiðnum um stuðning og uppbyggingu við íþróttahreyfinguna mætt á einn eða annan máta. Framsókn í Reykjanesbæ mun halda því áfram og bæta í. Við ætlum að gera enn betur með áherslu á að allir bæjarbúar hafi jöfn tækifæri til þátttöku sem og að allir bæjarbúar finni eitthvað við sitt hæfi. Styðjum við sjálfboðaliða íþróttahreyfingarinnar sem og tómstundafélaga, virkt samfélag er öflugt samfélag.
- Öll fjögurra ára börn og eldri njóti hvatagreiðslna, byrjum strax á því.
- Hækkum hvatagreiðslur í 60.000 krónur fyrir hvert barn frá 4-18 ára á kjörtímabilinu og tryggjum að foreldrar viti hvar hægt er að nýta styrkinn.
- Félagsmiðstöðvar út í hverfin, allir þurfa að fá tækifæri til þess að taka þátt í faglegu og skemmtilegu félagsstarfi í sínu hverfi.
- Frístundabílinn hefur breytt miklu varðandi tómstundaiðkun yngri barna – styrkja þarf þessa þjónustu og tryggja að hún nái einnig til eldri barna. Við ætlum að gera það.
- Áframhaldandi uppbygging íþróttamannvirkja í samvinnu við íþróttahreyfinguna.
- Tryggjum áframhaldandi faglegt starf ungmennaráðs, leiðum vagninn við gerð Frístundastefnu Reykjanesbæjar.
- Fjárfestum í unga fólkinu - hækkum framlag sveitarfélagsins til ungmennahússins og tryggjum öfluga starfsemi.
- Útivistarsvæði fyrir skáta í landi Reykjanesbæjar, allir íbúar munu njóta góðs af því.
- Afreksstyrkir til handa íþróttadeildum sem eiga íþróttamenn sem ná lágmörkum á alþjóðleg mót líkt og heimsmeistaramót og Ólympíuleika.