xB Framsókn Reykjanesbæ I Sveitarstjórnarkosningar 2022
  • Heim
  • Frambjóðendur
    • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    • Bjarni Páll Tryggvason
    • Díana Hilmarsdóttir
    • Róbert Jóhann Guðmundsson
    • Trausti Arngrímsson
    • Sighvatur Jónsson
    • Aneta Grabowska
    • Allir frambjóðendur
  • Málefnin
    • Stefnuskrá
    • Menntamál
    • Yngsta kynslóðin
    • Ábyrgur rekstur
    • Atvinnulífið
    • Íþróttir og tómstundir
    • Heilbrigðismálin
    • Útivistarparadís
    • Hverfið þitt
    • Eldra fólk
    • Miðbærinn
    • Fyrir fjölskylduna
  • Hafðu samband
  • Polski
Persónuverndarstefna

I. Almennt
Persónuvernd þín skiptir Framsókn í Reykjanesbæ miklu máli. Stefna þessi tekur til persónuupplýsinga hvort sem þeim er safnað og þær varðveittar með rafrænum hætti, á pappír eða með öðrum sambærilegum hætti. Stefnan tekur til skráningar, vörslu og vinnslu á persónuupplýsingum sem falla undir stefnuna. Stefnan er aðgengileg á heimasíðu Framsóknar í Reykjanesbæ.
 
II. Persónuverndarlöggjöf
Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga eins og þau eru á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Taka lögin m.a. á vinnslu, vörslu og miðlun persónuupplýsinga.
 
III. Ábyrgð
Framsókn í Reykjanesbæ ber ábyrgð á skráningu persónuupplýsinga og meðferð þeirra upplýsinga í starfsemi sinni. Framsókn í Reykjanesbæ, með skráða skrifstofu við Hafnargötu 62 í Reykjanesbæ, er löglegur stjórnandi persónuupplýsinganna sem þú veitir Framsókn í Reykjanesbæ Hægt er að hafa samband við skrifstofu Framsóknar í Reykjanesbæ með því að senda skriflega fyrirspurn á rnb@framsokn.is.
 
IV. Söfnun og notkun persónuupplýsinga
Framsókn í Reykjanesbæ notar upplýsingar sem safnað er með vafrakökum til að bæta viðmót og almenn gæði þjónustu. Í þessum tilgangi notar Framsókn í Reykjanesbæ þjónustu þriðju aðila, svo sem Google Analytics.
 
Framsókn í Reykjanesbæ nýtir persónuupplýsingar þínar til að veita og bæta þjónustuna okkar og upplýsingagjöf. Þú samþykkir söfnun og notkun upplýsinga í samræmi við þessa stefnu með því að vera í samskiptum við Framsókn í Reykjanesbæ á vefnum eða skráir upplýsingar um þig hjá Framsókn í Reykjanesbæ. Með því að veita Framsókn í Reykjanesbæ persónuupplýsingar eftir að hafa kynnt þér persónuverndarstefnu Framsóknar í Reykjanesbæ, samþykkir þú skilmála og skilyrði stefnunnar.
 
V. Miðlun
Rík áhersla er lögð á að varsla á persónuupplýsingum sé ávallt með ábyrgum hætti og verða þær upplýsingar ekki aðgengilegar öðrum aðilum en starfsfólki Framsóknar í Reykjanesbæ og eftir atvikum meginflokki Framsóknar á landsvísu. Allar upplýsingar sem þú afhendir starfsmönnum Framsóknar í Reykjanesbæ í trúnaði, t.d. í tengslum við starfsemi Framsóknar í Reykjanesbæ, er ekki miðlað til annarra en starfsmanna Framsóknar í Reykjanesbæ og framkvæmdastjóra eftir því sem við á og eru allir þeir aðilar bundnir fullum trúnaði. 
 
Við seljum aldrei, leigjum eða deilum persónuupplýsingum um þig. Við miðlum aldrei persónuupplýsingum til þriðja aðila án þess að samþykki þitt fyrir miðluninni liggi fyrir, sem þér er frjálst að hafna, nema þar sem okkur er það skylt samkvæmt lögum eða nauðsynlegt til að hafa uppi eða verjast réttarkröfu. Þó er athygli þín vakin á að allt efni sem þú birtir eða deilir á samfélagsmiðlasíðum okkar eru opinberar upplýsingar.
 
VI. Þriðju aðilar
Þjónusta Framsóknar í Reykjanesbæ og efni á heimasíðu Framsóknar í Reykjanesbæ getur haft að geyma tengla á aðrar síður sem Framsókn í Reykjanesbæ stjórnar ekki. Smellir þú á tengil frá þriðja aðila, verður þér beint á síðu þess þriðja aðila. Framsókn í Reykjanesbæ mælir eindregið með því að þú skoðir persónuverndarstefnu hverrar síðu sem þú heimsækir.
 
Persónuverndarstefnan nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því eindregið til að kynna þér persónuverndarstefnu þeirra aðila sem þú heimsækir, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Apple, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.
 
VII. Verndun
Framsókn í Reykjanesbæ leggur mikla áherslu á að vernda vel allar persónuupplýsingar. Framsókn í Reykjanesbæ mun tilkynna þér án ótilhlýðilegrar tafar ef það kemur upp öryggisbrot er varðar persónuupplýsingarnar þínar sem hefur í för með sér mikla áhættu fyrir þig. Með öryggisbroti er átt við brot á öryggi sem leiðir til óviljandi eða ólögmætrar eyðingar persónuupplýsinga eða að þær glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi.
 
Athygli þín er þó vakin á því að þú berð ábyrgð á persónuupplýsingum, t.d. nafni, kennitölu og mynd, sem þú kýst að deila eða senda á almennum vettvangi t.d. í gegnum Facebook síðu Framsóknar í Reykjanesbæ. Við viljum einnig taka fram að gagnaflutningur á internetinu er aldrei fullkomlega öruggur. Þér er því bent á að láta okkur umsvifalaust vita ef þú telur hættu á að tilteknar upplýsingar sem þú hefur gefið okkur séu í hættu.
 
VIII. Varðveisla
Framsókn í Reykjanesbæ reynir eftir fremsta magni að halda persónuupplýsingum um þig nákvæmum og áreiðanlegum og uppfærir þær eftir þörfum. Við varðveitum persónuupplýsingar um þig í að hámarki tvö ár frá því að þú lætur þær í té nema þú hafir með samþykki þínu veitt okkur heimild til að varðveita þær lengur eða ef okkur er það nauðsynlegt til að uppfylla lagaskyldu eða gæta lögmætra hagsmuna. Sama gildir um aðrar persónuupplýsingar sem þú afhendir okkur, t.d. í tengslum við starfsumsókn eða umsókn um setu í nefndum, ráðum, stjórnum og öðru slíku á vegum Framsóknar í Reykjanesbæ, annars staðar þar sem Framsókn í Reykjanesbæ á fulltrúa. Við munum fara yfir allar persónuupplýsingar um þig einu sinni á ári og endurskoða hvort okkur sé heimilt að varðveita þær áfram. Ef við ákveðum að okkur sé ekki heimilt að varðveita þær áfram, munum við hætta allri vinnslu með persónuupplýsingarnar frá þeim tíma. Ef möguleiki er á að persónuupplýsinganna kunni að vera þörf síðar til að uppfylla lagaskyldur, t.d. gagnvart stjórnvöldum, eða til að höfða eða verjast réttarkröfu, munum við taka afrit af hlutaðeigandi persónuupplýsingum og varðveita þær á öruggu formi eins lengi og nauðsyn ber til.
 
IX. Réttindi þín
Þú átt rétt á og getur óskað eftir tilteknum upplýsingum með því að senda skriflega fyrirspurn á rnb@framsokn.is. Einstaklingar hafa rétt á að beina eftirfarandi fyrirspurnum til Framsóknar í Reykjanesbæ vegna skráningar Framsóknar í Reykjanesbæ á upplýsingum:
  • að fá að vita hvaða persónuupplýsingar eru skráðar um þig og hvernig þær eru tilkomnar og fá aðgang að persónuupplýsingunum,
  • að fá upplýsingar um hvernig persónuupplýsingar um þig séu unnar,
  • að persónuupplýsingar um þig séu uppfærðar og leiðréttar,
  • að persónuupplýsingum um þig sé eytt, ef ekki er lengur málefnaleg ástæða til að varðveita þær,
  • að andmæla og/eða takmarka hvernig persónuupplýsingar séu unnar,
  • að fá afhendar persónuupplýsingar sem þú hefur látið okkur í té eða að þær séu sendar beint til annars aðila með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra setja,
  • að afturkalla samþykki þitt til vinnslu þegar vinnsla byggist á þeirri heimild með sama hætti og þú gafst það eða með því að senda á okkur skriflega fyrirspurn,
  • að fá upplýsingar um hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, þ.m.t. gerð persónusniðs og þau rök sem þar liggja að baki og einnig þýðingu og fyrirhugaðar afleiðingar slíkrar vinnslu.
Beiðni þín verður tekin til greina og þér afhentar upplýsingarnar, þegar það á við, innan hæfilegs tíma, þó með þeim takmörkunum sem réttindi og frelsi annarra gera. Athygli er vakin á að innheimt er sérstakt ljósritunargjald ef farið er fram á fleira en eitt afrit. Þér verður tilkynnt og gefin skýring ef töf verður á afgreiðslu eða ef ekki er unnt að verða við beiðninni að fullu eigi síðar en mánuði frá móttöku hennar. Þú getur kvartað til Persónuverndar ef við neitum að afhenda þér ákveðnar upplýsingar.
 
X. Persónuvernd barna
Persónuupplýsingar um börn yngri en 13 ára er ekki safnað.
 
XI. Breytingar á persónuverndarstefnu Framsóknar í Reykjanesbæ
Persónuverndarstefnan er endurskoðuð reglulega og kann því að taka breytingum. Framsókn í Reykjanesbæ mun tilkynna um allar breytingar með því að birta nýja persónuverndarstefnu á heimasíðu samtakanna. Þér er því ráðlagt að kynna þér persónuverndarstefnuna reglulega en breytingar á stefnunni öðlast gildi við birtingu á heimasíðu Framsóknar í Reykjanesbæ. Þegar efnislegar breytingar eru gerðar sem kunna að hafa þó nokkur áhrif á réttindi þín munum við tilkynna sérstaklega um þær. Við tökum öllum athugasemdum um persónuverndarstefnuna fagnandi og hvetjum þig til að senda okkur fyrirspurn.
 
Framsókn í Reykjanesbæ 
Hafnargötu 62
230 Reykjanesbæ
Sími: 779 6330
Netfang: rnb@framsokn.is
  • Heim
  • Frambjóðendur
    • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    • Bjarni Páll Tryggvason
    • Díana Hilmarsdóttir
    • Róbert Jóhann Guðmundsson
    • Trausti Arngrímsson
    • Sighvatur Jónsson
    • Aneta Grabowska
    • Allir frambjóðendur
  • Málefnin
    • Stefnuskrá
    • Menntamál
    • Yngsta kynslóðin
    • Ábyrgur rekstur
    • Atvinnulífið
    • Íþróttir og tómstundir
    • Heilbrigðismálin
    • Útivistarparadís
    • Hverfið þitt
    • Eldra fólk
    • Miðbærinn
    • Fyrir fjölskylduna
  • Hafðu samband
  • Polski