Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja metin að verðleikum
Framsókn mun setja á laggirnar samstarfsverkefni og verðlauna fyrirtækin okkar sem sýna samfélagslega ábyrgð enda eru þau hornsteinn blómlegs atvinnulífs og velferðar. Þannig byggjum við upp enn sterkara samfélag í sameiningu. Með auknu svigrúmi og góðum rekstri gefst tækifæri til að efla markaðs-og atvinnumál enn frekar. Framsókn mun þannig sækja fleiri innlend og alþjóðleg fyrirtæki til bæjarfélagsins.
Tækifærin eru mikil. Lóðaframboð fyrir fjölbreytta starfsemi er nægt. Stutt er í góðar hafnir, alþjóðaflugvöll og góðir innviðir til staðar. Það er okkar að kynna þessi tækifæri og fjölga enn frekar stoðunum undir blómlegt atvinnulíf.