uppbygging íþróttamannvirkja og FÉLAGSMIÐSTÖÐVAR Í ÖLL HVERFI
Framsókn mun hraða uppbyggingu íþróttamannvirkja og styrkja rekstur íþróttafélaga. Nýtt fimleikahús verður byggt og tekið í notkun árið 2029. Markmiðið er að fimm nýir æfingavellir fyrir knattspyrnudeildir verði tilbúnir 2028. Framsókn mun veita þjónustuaðilum á sviði íþrótta-og tómstundamála 10.000 kr. rekstrarstyrk á ári með hverjum iðkanda.
Framsókn mun tryggja samninga um greiðsluþátttöku nágrannasveitarfélaga með börnum sem æfa íþróttir í Reykjanesbæ en eru ekki búsett í bæjarfélaginu. Sú leiðrétting mun renna til félaganna. Stuðningurinn mun efla íþrótta-og tómstundahreyfinguna í Reykjanesbæ til muna. Markmiðið er að skapa fjölbreytt, aðgengilegt og sjálfbært íþrótta-og tómstundastarf fyrir alla. Tryggjum að Reykjanesbær standi undir nafni sem íþróttabær Íslands.
Framsókn mun tryggja félagsmiðstöðvar í öll hverfi bæjarins á kjörtímabilinu og innleiða tómstundastefnu Reykjanesbæjar.