Öflug hagsmunagæsla með hagsmunaráði
Framsókn setur hagsmunagæslu íbúa í Reykjaesbæjar í fyrsta sæti. Framsókn mun standa gegn einhliða ákvörðunum stjórnvalda í málefnum hælisleitenda, vinna markvisst að uppbyggingu á aðstöðu fyrir skipastól Landhelgisgæslunnar í Njarðvíkurhöfn, nýrri heilsugæslustöð HSS í Innri-Njarðvík og viðbyggingu fyrir bæði verknám og bóknám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.