xB Framsókn Reykjanesbæ I Sveitarstjórnarkosningar 2026
  • Heim
  • Frambjóðendur
    • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    • Róbert Jóhann Guðmundsson
    • Díana Hilmarsdóttir
    • Birgir Már Bragason
    • Halla Karen Guðjónsdóttir
    • Sighvatur Jónsson
    • Allir frambjóðendur
  • Málefnin
    • Stefnuskrá
    • Traust fjármálastjórn byggir betri bæ
    • Besti bærinn til að ala upp börn
    • Öflug hagsmunagæsla fyrir Reykjanesbæ
    • Blómlegur bær fyrir eldra fólk
    • Fallegra umhverfi og skýrara skipulag
    • Öflugt íþrótta- og tómstundastarf
    • Sterkari þjónusta með fjölskyldusviði
    • Aukinn stuðningur við húsbyggjendur
    • Sterkara atvinnulíf og samfélagsleg ábyrgð
    • Samræmum lóðaleigu og jöfnum leikinn
    • Bætt ímynd og öflugra menningarlíf
  • Hafðu samband
  • Polski
  • English
Picture


​​HALLA KAREN
GUÐJÓNSDÓTTIR

SÉRFRÆÐINGUR

​Halla Karen Guðjónsdóttir er tæplega 38 ára verkefnastjóri, sérfræðingur, leikkona og skemmtikraftur. Hún er í sambúð með Arnari Inga Tryggvasyni og saman reka þau heimili sem samanstendur af þremur börnum, 21 árs, 11 ára og 5 ára ásamt 11 ára gamalli kviðslitinni kisu. Halla Karen starfar sem sérfræðingur í Myllubakkaskóla og hefur alla sína starfsævi unnið hjá eða fyrir Reykjanesbæ.

Halla Karen er borinn og barnfæddur Njarðvíkingur þó hún hafi meirihluta ævinnar alið manninn í Keflavík. Henni þykir afskaplega vænt um bæinn sinn og brennur fyrir því að skólarnir okkar, stjórnsýslan og allt sem viðkemur börnum og ungmennum sé eins og best verður á kosið. Menningarmál skipa stóran sess í hjarta Höllu enda starfaði hún í fjölmörg ár sem viðburðastjóri helstu menningarviðburða bæjarins, auk þess sem hún hefur verið virk í starfi Leikfélags Keflavíkur og starfað sem leikkona og skemmtikraftur við hin ýmsu tækifæri.

Halla Karen er gríðarlega mikil stemmningskona sem allir vilja hafa með sér í liði. Það verður nefnilega alltaf að vera svolítið gaman þar sem hún er, annars er svo leiðinlegt. Í frístundum sínum finnst henni best að vera með fólkinu sínu, hvar svo sem það er. Helst hafa það þó undanfarið verið stundir sem miða að því að styðja börnin sín í þeirra daglegu störfum en þau hafa getið sér gott orð fyrir árangur í bæði dansi og leiklist. Þess utan eiga ferðalög og púsluspil hug hennar og hjarta.

Sturluð staðreynd: Halla Karen var eitt sinn Íslandsmeistari í körfubolta með Njarðvík. Aldrei hefur bekknum verið haldið jafn heitum og þegar hún sat þar löngum stundum og stóð eingöngu upp til að sækja vatn fyrir liðsfélaga sína.

Halla Karen skipar 5. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí næstkomandi.
  • Heim
  • Frambjóðendur
    • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    • Róbert Jóhann Guðmundsson
    • Díana Hilmarsdóttir
    • Birgir Már Bragason
    • Halla Karen Guðjónsdóttir
    • Sighvatur Jónsson
    • Allir frambjóðendur
  • Málefnin
    • Stefnuskrá
    • Traust fjármálastjórn byggir betri bæ
    • Besti bærinn til að ala upp börn
    • Öflug hagsmunagæsla fyrir Reykjanesbæ
    • Blómlegur bær fyrir eldra fólk
    • Fallegra umhverfi og skýrara skipulag
    • Öflugt íþrótta- og tómstundastarf
    • Sterkari þjónusta með fjölskyldusviði
    • Aukinn stuðningur við húsbyggjendur
    • Sterkara atvinnulíf og samfélagsleg ábyrgð
    • Samræmum lóðaleigu og jöfnum leikinn
    • Bætt ímynd og öflugra menningarlíf
  • Hafðu samband
  • Polski
  • English