Blómlegur bær fyrir eldrI BORGARA BÆJARINS
Félagsleg einangrun er ein stærsta áskorun sem eldra fólk getur staðið frammi fyrir. Eldra fólk er auðlind og samfélagið á að skapa rými fyrir reynslu, þekkingu og framlag þess. Þegar fólk hættir störfum eða missir maka getur tengslanet horfið á skömmum tíma. Framsókn mun snúa þeirri þróun við með því að byggja upp öfluga tómstundamiðstöð fyrir eldra fólk í Reykjanesbæ til að auka virkni, félagslega þátttöku og vellíðan. Hún verður lifandi miðpunktur.