xB Framsókn Reykjanesbæ I Sveitarstjórnarkosningar 2026
  • Heim
  • Frambjóðendur
    • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    • Róbert Jóhann Guðmundsson
    • Díana Hilmarsdóttir
    • Birgir Már Bragason
    • Halla Karen Guðjónsdóttir
    • Sighvatur Jónsson
    • Allir frambjóðendur
  • Málefnin
    • Stefnuskrá
    • Traust fjármálastjórn byggir betri bæ
    • Besti bærinn til að ala upp börn
    • Öflug hagsmunagæsla fyrir Reykjanesbæ
    • Blómlegur bær fyrir eldra fólk
    • Fallegra umhverfi og skýrara skipulag
    • Öflugt íþrótta- og tómstundastarf
    • Sterkari þjónusta með fjölskyldusviði
    • Aukinn stuðningur við húsbyggjendur
    • Sterkara atvinnulíf og samfélagsleg ábyrgð
    • Samræmum lóðaleigu og jöfnum leikinn
    • Bætt ímynd og öflugra menningarlíf
  • Hafðu samband
  • Polski
  • English
Picture


​​BIRGIR MÁR
​BRAGASON

FRAMKVÆMDASTJÓRI

Birgir Már Bragason er fæddur og uppalinn í Keflavík og vill hvergi annars staðar búa. Hann býr í holtunum með eiginkonu sinni Halldóru G. Jónsdóttur en þau eiga 4 börn, Thelmu Rún, Braga Má, Jón Arnar og Hörpu Guðrúnu, barnabarnið Tómas Örvar og hundinn Bjarma. Birgir starfar sem framkvæmdastjóri Keflavíkur íþrótta og ungmennafélags og hefur gert sl. 2 ár. Hann er málari að mennt og vann við þá iðn til margra ára með eigið fyrirtæki.

Íþróttamálin hafa alla tíð verið Birgi hugleikin og hefur hann víðtæka reynslu innan þess geira. Fyrst eins og hjá flestum sem iðkandi en einnig snemma sem sjálfboðaliði og stjórnarmaður. Í dag situr hann í stjórn UMFÍ auk starfa sinna hjá Keflavík og ÍRB.

Eftir að hann byrjaði í pólitík víkkaði sjóndeildarhringurinn. Þar hefur hann sinnt ýmsum hlutverkum;  stjórnarformaður Kölku, fulltrúi í íþrótta- og tómstundaráði og eignasjóði og nú síðast varabæjarfulltrúi.
Helstu áhugamál Birgis eru veiði og ferðalög innanlands sem utan þar sem hann hefur tækifæri til að upplifa nýja staði og menningu.

Birgir brennur fyrir uppbyggingu íþróttamannvirkja og tómstundaaðstöðu sem þjónar öllum aldurshópum og félögum í bænum. Þá vill hann að Reykjanesbær sé eftirsóknarverður staður til að búa á, með öflugt atvinnulíf, blómlegt mannlíf í fallegu umhverfi. Hann segist vera samfélagsdrifinn og hefur tröllatrú á samvinnu og virka þátttöku íbúa og tilbúinn að leggja sig allan fram fyrir bæinn sinn.

Sturluð staðreynd um Birgi er að hann er með 8 tegundir af ofnæmi.

​Birgir skipar 4. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí næstkomandi. 
  • Heim
  • Frambjóðendur
    • Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
    • Róbert Jóhann Guðmundsson
    • Díana Hilmarsdóttir
    • Birgir Már Bragason
    • Halla Karen Guðjónsdóttir
    • Sighvatur Jónsson
    • Allir frambjóðendur
  • Málefnin
    • Stefnuskrá
    • Traust fjármálastjórn byggir betri bæ
    • Besti bærinn til að ala upp börn
    • Öflug hagsmunagæsla fyrir Reykjanesbæ
    • Blómlegur bær fyrir eldra fólk
    • Fallegra umhverfi og skýrara skipulag
    • Öflugt íþrótta- og tómstundastarf
    • Sterkari þjónusta með fjölskyldusviði
    • Aukinn stuðningur við húsbyggjendur
    • Sterkara atvinnulíf og samfélagsleg ábyrgð
    • Samræmum lóðaleigu og jöfnum leikinn
    • Bætt ímynd og öflugra menningarlíf
  • Hafðu samband
  • Polski
  • English